Fótbolti

Sjáðu hjólhestaspyrnu Pedro sem endaði með marki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Barcelona vann Real Sociedad eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld, en með sigrinum steig Barcelona ansi stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum á Spáni.

Neymar skoraði fyrra markið í upphafi síðari hálfleiks, en varamaðurinn Pedro Rodriguez skoraði síðari markið skömmu fyrir leikslok með laglegri hjólhestaspyrnu.

Með sigrinum skaust Barcelona nær titlinum, en mörkin úr leiknum má sjá hér að ofan. Þar á meðal er afar fallegt mark Pedro, en hann skoraði það með hjólhestaspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×