Fótbolti

Alfreð sat allan tímann á bekknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason .
Alfreð Finnbogason . Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason kom ekkert við sögu í kvöld þegar lið hans Real Sociedad gerði 1-1 jafntefli við Athletic Bilbao á útivelli í slag Baska-liðanna en Sociedad-menn jöfnuðu metin í seinni hálfleik þrátt fyrir að vera manni færri.

Mikel González, miðvörður Real Sociedad, fékk rauða spjaldið á 51. mínútu og Aritz Aduriz kom Athletic Bilbao í 1-0 úr vítinu.

Þannig var stðan í átta mínútur eða þar til að bakvörðurinn Alberto de la Bella jafnaði metin. Real Sociedad hélt síðan út manni færri í tæpar fjórtíu mínútu og náði stigi á útivelli í uppgjöri þessar tveggja Baskaliða.

David Moyes, þjálfari Real Sociedad, notaði bara tvær skiptingar í leiknum og Alfreð fékk því ekkert að koma inná í leiknum.  Alfreð hefur fengið lítið að vera með að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×