Fótbolti

Fullkomin markakeðja Börsunga í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luis Suárez fagnar einu marka sinna í gær.
Luis Suárez fagnar einu marka sinna í gær. Vísir/Getty
Börsungar unnu ekki bara stórsigur á Getafe í spænsku deildinni í gær heldur bjuggu þeir til hina fullkomnu markakeðju í 6-0 sigri.

Leikurinn þróaðist nefnilega þannig að sá sem skoraði lagði alltaf upp næsta mark fyrir annan leikmann í liðinu. Fimm af þessum sex mörkum komu í fyrri hálfleiknum en þrjú fyrstu mörkin skoraði sóknarlínan  Lionel Messi, Luis Suárez og Neymar.

Lionel Messi skoraði þannig fyrsta marki Barcelona í leiknum og átti síðan stoðsendinguna á Luis Suárez í marki tvö. Luis Suárez lagði síðan upp næsta mark fyrir Neymar og svo koll af kolli.

Lionel Messi og Luis Suárez skoruðu báðir tvö mörk í leiknum og Luis Suárez átti einnig tvær stoðsendingar auk þess að fiska vítið í fyrsta markinu.

Hér fyrir neðan má sjá þessa skemmtilegu markakeðju sem og síðan myndbönd með öllum mörkunum sex.



Mörk Börsunga í 6-0 sigri á Getafe:

Mark 1: Lionel Messi skorar úr víti

Mark 2: Luis Suárez skorar eftir stoðsendingu Lionel Messi

Mark 3: Neymar skorar eftir stoðsendingu Luis Suárez

Mark 4: Xavi skorar eftir stoðsendingu Neymar

Mark 5: Luis Suárez skorar eftir stoðsendingu Xavi

Mark 6: Lionel Messi skorar eftir stoðsendingu Luis Suárez

1-0 fyrir Barcelona - Lionel Messi 2-0 fyrir Barcelona - Luis Suárez 3-0 fyrir Barcelona - Neymar 4-0 fyrir Barcelona - Xavi 5-0 fyrir Barcelona - Luis Suárez 6-0 fyrir Barcelona - Lionel Messi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×