Fótbolti

Real Sociedad og Deportivo skildu jöfn | Alfreð ekki í hóp

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð var ekki í leikmannahópi Real Sociedad í kvöld.
Alfreð var ekki í leikmannahópi Real Sociedad í kvöld. vísir/epa
Alfreð Finnbogason var ekki í leikmannahópi Real Sociedad þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Deportivo La Coruna á heimavelli.

Baskarnir náðu forystunni í tvígang en Deportivo sýndi seiglu og náði ágætis stig á útivelli.

Sociedad er í 11. sæti deildarinnar með 38 stig en Deportivo í því 16. með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×