36 ár síðan lið skoraði síðast níu mörk á Spáni | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2015 16:00
Real Madrid niðurlægði Granada 9-1 á Santiago Bernabeu í fyrsta leik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan. Heimamenn fóru á kostum og sýndu gestunum enga miskunn. Cristiano Ronaldo var í miklum ham og skoraði fimm mörk en þetta var í fyrsta sinn sem hann afrekar það á ferlinum. Þrjú af mörkunum fimm komu á átta mínútna kafla í fyrri hálfleik. Ronaldo varð jafnframt sá fyrsti til að skora fimm mörk í leik í spænsku deildinni síðan Falcao gerði fimm mörk í 6-0 sigri Atletico Madrid á Deportivo La Coruna 9. desember 2012. Þrjátíu og sex ár eru liðin síðan lið skoraði síðast níu mörk í spænsku deildinni. Það gerði Barcelona í 9-0 sigri á Rayo Vallecano 14. janúar 1979, þar sem Austurríkismaðurinn Hans Krankl skoraði fimm mörk. Real Madrid hafði hins vegar ekki skorað níu mörk í deildarleik síðan 1967 þegar liðið vann Real Sociedad 9-1 16. september 1967. Þrátt fyrir stórsigurinn er Real Madrid enn stigi á eftir Barcelona á toppi deildarinnar. Börsungar geta aukið forskotið í fjögur stig með sigri á Celta Vigo í kvöld.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Real Madrid skoraði níu gegn Granada | Sjáðu mörkin Real Madrid valtaði yfir gesti sína frá Granada í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í morgun en Madrídingar gerðu sér lítið fyrir og skoruðu níu mörk gegn einu gestanna. 5. apríl 2015 00:01 Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Körfubolti Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Fótbolti Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna Körfubolti Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Fleiri fréttir „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Sjá meira
Real Madrid skoraði níu gegn Granada | Sjáðu mörkin Real Madrid valtaði yfir gesti sína frá Granada í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í morgun en Madrídingar gerðu sér lítið fyrir og skoruðu níu mörk gegn einu gestanna. 5. apríl 2015 00:01