Fótbolti

Madrídarslagur í Meistaradeildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari og mætir samborgurum sínum.
Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari og mætir samborgurum sínum. vísir/getty
Madrídarliðin Atlético og Real mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta en dregið var í næstu umferð í dag.

Atlético er ríkjandi Spánarmeistari en Real Madrid ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Atlético í úrslitaleiknum í fyrra.

PSG, sem skellti Chelsea í 16 liða úrslitunum, mætir Barcelona í átta liða úrslitum og þá eigast við Porto og Bayern annars vegar og Juventus og Monaco hinsvegar. Leikirnir fara fram 14.-15. apríl og 21.-22. apríl.

Átta liða úrslitin:

PSG - Barcelona

Atlético - Real Madrid

Porto - Bayern

Juventus - Monaco




Fleiri fréttir

Sjá meira


×