Fótbolti

Hlegið að Messi um allan heim fyrir að klæða sig eins og pabbinn á skólaballinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lionel Messi og strákarnir eftir leikinn í gær.
Lionel Messi og strákarnir eftir leikinn í gær. mynd/twitter
Fólk á Twitter hefur gert mikið grín að klæðaburði Lionels Messi eftir sigurinn í El Clásico á sunnudagskvöldið.

Messi birtist á mynd með nokkrum félögum sínum í Barcalona-liðinu, en þar má sjá t.d. Brasilíumennina Neymar, Dani Alves og Rafinha.

Allir á myndinni eru klæddir í nýjustu tískufötin, sumir betur klæddir en aðrir, en Messi lítur út eins og hann sé á leið í fermingarveislu.

„Messi lítur út eins og pabbinn á skólaballinu,“ segir einn á Twitter og annar skilur nú af hverju Messi sé alltaf líkt við NBA-stjörnuna Tim Duncan.

Hér að neðan má sjá nokkur tíst um klæðaburð Messi eftir El Clásico í gær.


Tengdar fréttir

Suárez: Mikilvægasta markið mitt

Úrúgvæski framherjinn búinn að koma að 27 mörkum í 27 leikjum fyrir Barcelona en ekkert er stærra en glæsimarkið í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×