Lífið

Game of Thrones mun spilla fyrir lesendum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP/HBO
David Benioff, framleiðandi Game of Thrones, sagði nýverið að þættirnir myndu klárast áður en bækurnar sjö í Song of Ice and Fire seríunni væru komnar út. Þættirnir munu enda á sama máta og bækurnar og munu því spilla fyrir lesendum bókanna.

„Sem betur fer höfum við rætt þetta við George um langt skeið, allt frá því að við áttuðum okkur á því að þetta gæti gerst og við vissum hvert stefndi. Á endanum munum við enda á sama stað og George er að fara. Það verða mögulega farnar mismunandi leiðir, en við stefnum á sama stað,“ hefur Vanity Fair, eftir Benioff.

„Ég vildi að vissu leyti að við þyrftum ekki að spilla fyrir, en við erum fastir á milli steins og sleggju. Sýningin verður að halda áfram og við ætlum okkur að gera það.“

Fimmta sería GOT, sem hefst í næsta mánuði mun fjalla um fjórðu og fimmtu bækur SOIAF, A Feast for Crows og A Dance with Dragons. Þá verða bæði lesendur og áhorfendur á sama stað í sögunni.

George R.R. Martin, höfundur sögunnar, hefur hætt við fjölda ráðstefna og viðtala og segist vera að einbeita sér af því að klára sjöttu bókina, The Winds of Winter. Þá hefur hann gefið í skyn að mögulega verði hann búinn að skrifa hana í sumar.

Því er mögulegt að lesendur verði aftur komnir lengra áfram í sögunni, en þeir sem horfa eingöngu á þættina. Hins vegar verður að teljast ljóst að slíkt er nánast ómögulegt fyrir sjöundu seríu. Sjöunda bókin mun heita A Dream of Spring, en fyrsta bókin A Game of Thrones, var gefin út árið 1996.

Ef einhverjir vilja rifja upp hvað hafi gerst hingað til í Westeros og hinum gífurlega flókna heimi sem George R.R. Martin hefur skapað er það mögulegt hér á aðdáendasíðunni Westeros.org. Sýning fimmtu seríunnar hefst þann 13. apríl.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.