Enski boltinn

Mourinho: PSG grófasta liðið sem við höfum mætt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mourinho er jafnan líflegur á blaðamannafundum.
Mourinho er jafnan líflegur á blaðamannafundum. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, gat ekki stillt sig um að skjóta aðeins á leikstíl Paris Saint-Germain fyrir seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum þar sem PSG var nær sigri. Mourinho var ósáttur með meðferðina sem Eden Hazard fékk, en leikmenn franska liðsins brutu alls níu sinnum á Belganum í leiknum.

„Á þessu tímabili höfum við spilað við lið úr neðri deildunum á Englandi en grófasta liðið sem höfum mætt er PSG. Ég bjóst við betri fótbolta frá liði sem býr yfir svona miklum gæðum,“ sagði Mourinho á blaðamannafundi fyrir leikinn.

Leikmenn PSG brutu níu sinnum á Eden Hazard í fyrri leiknum gegn Chelsea.vísir/getty
„Ég hélt að enskt lið myndi aldrei vera hissa á hörðum leik, því það er spilað fast í Englandi.

„Lið sem með svona frábæra leikmenn innanborðs braut af sér í sífellu. PSG stöðvaði Eden Hazard með því að brjóta á honum í tíma og ótíma.

„Þeir sóttu með 2-3 leikmönnum mjög hart að manninum sem var með boltann hjá okkur,“ bætti Mourinho við en hvort lið fékk dæmdar á sig 20 aukaspyrnur í fyrri leiknum.

Liðin mættust einnig í Meistaradeildinni í fyrra, í átta-liða úrslitunum, þar sem Chelsea fór áfram á útivallarreglunni.

PSG vann fyrri leikinn í París 3-1 en Chelsea sneri dæminu við á Brúnni og vann 2-0 sigur með mörkum frá varamönnunum André Schürrle og Demba Ba.

Leikur Chelsea og PSG hefst klukkan 19:45 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Stuðningsmenn Chelsea hentu manni út úr lest í París

Stuðningsmenn Chelsea urðu sér og félagi sínu til skammar í gærkvöldi þegar þeir voru á ferð með lest í miðborg París en Chelsea gerði 1-1 jafntefli við Paris Saint-Germain í gærkvöldi í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Mourinho: PSG vildi fá mig sem knattspyrnustjóra

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, á nú möguleika á því að slökkva á Meistaradeildardraumi franska liðsins Paris Saint-Germain annað árið í röð en í kvöld fer fram fyrri leikur liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hazard sparkaður níu sinnum niður í gær | Mourinho ósáttur

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, gagnrýndi leikmenn franska liðsins Paris Saint-Germain fyrir meðferð þeirra á belgíska landsliðsmanninum Eden Hazard í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

PSG spilar með sorgarbönd á móti Chelsea

Leikmenn franska liðsins Paris Saint-Germain munu spila með sorgarbönd í seinni leiknum á móti Chelsea í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en liðin mætast á Brúnni í London á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×