Fótbolti

Xavi gæti spilað 750. leik fyrir Barcelona í dag

Arnar Björnsson skrifar
Xavi Hernandez.
Xavi Hernandez. Vísir/Getty
Barcelona getur náð fjögurra stiga forystu á Real Madríd takist Katalóníuliðinu að vinna Eibar í spænsku 1. deildinni í dag.  

Eibar kom á óvart á síðustu leiktíð og vann 2. deildina og er að spila í 1. sinn í la liga, efstu deild á Spáni.  Liðið er í 14. sæti og hefur unnið sjö leiki á leiktíðinni.  

Luis Enrique knattspyrnustjóri Barcelona ætlar greinilega ekki að vanmeta baskana. Jordi Alba verður hvíldur, Daniel Alves er í banni og þeir Sergio Busquets og Thomas Vermaelen eru meiddir.  

Xavi Hernandez gæti spilað 750. leik sinn fyrir Barcelona.  Enginn leikmaður hefur spilað fleiri leiki en hinn 35 ára gamli Xavi fyrir Barcelona.

Hann hefur ekki unnið jafn marga titla og Ryan Giggs en stendur honum þó  ekki langt að baki.  

Xavi hefur sjö sinnum orðið Spánarmeistari, tvisvar bikarmeistari og þrisvar sinnum unnið meistaradeildina með Barcelona.  Sex sinnum hefur hann unnið ofurbikarinn á Spáni, tvisvar ofurbikar Evrópu og tvisvar hefur hann verið í sigurliði Barcelona í keppni um heimsmeistaratitil félagsliða.

Xavi lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Barcelona í ágúst 1998 og skoraði þá í úrslitaleik spænska ofurbikarsins gegn Mallorca.  

Hann lék sinn fyrsta deildarleik tveimur mánuðum síðar undir stjórn knattspyrnustjóra sem þykir valtur í sessi þessa dagana, Louis van Gaal hjá Manchester United.

Xavi er að spila sextándu leiktíðina með Barcelona og væntanlega þá síðustu.  Í janúar var hann á leið frá Barcelona en ákvað að halda áfram og klára leiktíðina með Katalóníuliðinu.  

Leikur Eibar og Barcelona verður sýndur á Stöð 2 sport í dag en flautað verður til leiks klukkan 17.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×