Fótbolti

Fimmti sigur Bayern í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bæjarar fagna í kvöld.
Bæjarar fagna í kvöld. Vísir/Getty
Bayern Munchen heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta, en þeir áttu í engum vandræðum með Werder Bremen í Bremen í dag. Lokatölur 0-4.

Thomas Muller kom gestunum frá Munchen yfir og Alaba bætti vð marki fyrir hlé. Pólverjinn Robert Lewandowski bætti svo við tveimur mörkum í síðari hálfleik fyrir meistarana, en þeir hvíldu meðal annars Manuel Neuer, Arjen Robben og Franck Ribery.

Bayern er á toppnum með fjórtán stiga forskot á Wolfsburg sem er í öðru sætinu, en Wolfsburg á leik til góða gegn Freiburg á morgun. Bayern vann fyrri leikinn gegn Werder Bremen 6-0 og því samanlagt 10-0 leikina tvo gegn Bremen á þessu tímabili.

Borussia Dortmund sem hefur hægt og rólega fikrað sig upp töfluna gerði markalaust jafntefli við FC Köln á heimavelli. Dortmund er í tíunda sæti deildarinnar með 30 stig, en Köln er tveimur sætum neðar með stigi minna en þeir gulklæddu.

Öll önnur úrslit dagsins má sjá hér að neðan.

Úrslit dagsins:

Augsburg - Mainz 05 0-2

Eintracht Frankfurt - Paderborn 4-0

Hertha Berlin - Schalke 2-2

Hoffenheim - Hamburger SV 3-0

Werder Bremen - Bayern München 0-4

Borussia Dortmund - FC Köln 0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×