Fótbolti

Wenger tapsár eftir leikinn í gær: Mónakó átti þetta ekki skilið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, fylgist með sínum mönnum í gær.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, fylgist með sínum mönnum í gær. Vísir/Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, horfði í gær upp á sína menn detta út úr sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar fimmta árið í röð. Wenger var sár og svekktur eftir leikinn.

Arsenel vann reyndar 2-0 sigur á Mónakó á útivelli en það dugði ekki þar sem enska liðið tapaði 3-1 á útivelli í fyrri leiknum. Frakkarnir fóru því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli og er því komnir í átta liða úrslitin.

„Mónakó átti ekki skilið að fara áfram. Ef þið skoðið skot þeirra á mark í leiknum þá kemur sú tala ykkur örugglega á óvart. Það er alltaf sárt að tapa en við töpuðum ekki," sagði Arsene Wenger.

Arsenal hefur undanfarin ár dottið út á móti stórliðunum Bayern München (tvisvar), AC Milan og Barcelona. Það þarf því ekki að koma á óvart að Wenger var svekktastur með tapið í ár.

„Þetta er ólíkt hinum skiptunum. Heildarniðurstaðan er mikið svekkelsi en leikur liðsins var samt mjög jákvæður. Þessi leikur var í takt við það sem við höfum verið að gera að undanförnu," sagði Wenger en Arsenal vann þarna sinn áttunda sigur í síðustu níu leikjum.

„Við spiluðum ekki eins og við vildum gera í fyrri leiknum og það varð okkur að falli. Mónakó var samt að spila á heimavelli. Þeir náðu ekki einu skoti á markið í leiknum en eru samt á leiðinni í átta liða úrslitin," sagði Wenger.

„Frammistaða liðsins í leiknum í kvöld voru engin vonbrigði. Við viljum byggja á henni það sem eftir er tímabilsins," sagði Wenger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×