Fótbolti

Rakitic: Meira að segja leikmenn City nutu þess að horfa á Messi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lionel Messi og Ivan Raktic í leiknum í gærkvöldi.
Lionel Messi og Ivan Raktic í leiknum í gærkvöldi. vísir/getty
Ivan Raktic, króatíski miðjumaðurinn í liði Barcelona, skoraði eina mark liðsins í gærkvöldi þegar liðið vann Englandsmeistara Manchester City, 1-0, í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Rakitic skoraði markið eftir glæsilega sendingu Lionels Messi, en argentínski snillingurinn fór á kostum í báðum leikjunum og hefði getað skorað fleiri mörk og gefið fleiri stoðsendingar.

„Hann er ótrúlegur, alveg magnaður. Það eru engin orð sem lýsa Messi lengur. Það veit enginn hvað á að segja um þennan mann,“ sagði Rakitic við Canal Plus eftir leikinn.

„Ég held meira að segja að leikmenn Manchester City hafi notið þess að horfa á Messi í kvöld. Vonandi heldur hann áfram að spila svona.“

Messi hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað meira en nokkur maður á nýju ári. Hann er orðinn markahæsti leikmaður spænsku 1. deildarinnar og er þar með Börsungum á toppnum fyrir El Clásico sem fer fram um helgina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×