Fótbolti

Malaga stöðvaði sigurgöngu Börsunga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Börsungar komust lítt áleiðis gegn Malaga í dag.
Börsungar komust lítt áleiðis gegn Malaga í dag. vísir/getty
Stórskotalið Barcelona tapaði óvænt fyrir Malaga á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Það var Juanmi sem skoraði eina mark leiksins á 7. mínútu en þrátt fyrir linnulitla sókn Börsunga héldu gestirnir út og fögnuðu sætum sigri.

Þetta var fyrsta tap Barcelona síðan 4. janúar þegar lærisveinar Luis Enrique biðu lægri fyrir Real Sociedad á útivelli. Fyrir leikinn í dag var Barcelona búið að vinna 11 leiki í röð í öllum keppnum.

Barcelona er einu stigi á eftir Real Madrid sem getur aukið forystu sína á toppi deildarinnar í fjögur stig með sigri á Elche á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×