Fótbolti

Benzema og Ronaldo á skotskónum í sigri Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cristiano Ronaldo er markahæstur í deildinni með 29 mörk.
Cristiano Ronaldo er markahæstur í deildinni með 29 mörk. vísir/getty
Real Madrid náði fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 0-2 sigri á Elche á útivelli í kvöld.

Þetta var annar deildarsigur Evrópumeistaranna í röð eftir stórtapið gegn Atletico Madrid fyrir tveimur vikum.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 56. mínútu kom Karim Benzema Madrídingum yfir með sínu 18. marki í vetur.

Það var svo Cristiano Ronaldo sem gulltryggði sigurinn með skallamarki á 69. mínútu eftir sendingu frá Isco.

Þetta var mark númer 290 sem Ronaldo skorar fyrir Real Madrid en hann er nú kominn upp að hlið Santillana í 3.-4. sæti yfir markahæstu leikmenn sögu félagsins. Aðeins Raúl og Alfredo di Stefano hafa skorað fleiri.

Þess má geta að Ronaldo þurfti aðeins 281 leik til að ná þessum markafjölda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×