Fótbolti

Messi og Pique myndaðir fyrir utan spilavíti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pique og Messi slá á létta strengi á æfingu Barcelona á Ettihad-leikvanginum í Manchester í gær.
Pique og Messi slá á létta strengi á æfingu Barcelona á Ettihad-leikvanginum í Manchester í gær. Vísir/Getty
Spænskir fjölmiðlar birtu í gær myndir af þeim Gerard Pique, Lionel Messi og Cesc Fabregas fyrir utan spilavíti í Barcelona. Myndirnar voru teknar aðfaranótt sunnudags en Börsungar mæta Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Myndirnar voru teknar aðeins nokkrum klukkutímum áður en lið Barcelona flaug til Englands til að undirbúa sig fyrir leikinn. Messi og Pique eru lykilmenn hjá Barcelona en Cesc Fabregas gekk í raðir Chelsea frá Börsungum í sumar.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum á Fabregas íbúð í sama húsnæði og spilavítið er í en Pique vildi ekkert ræða málið þegar hann var spurður út í það. „Þetta er mitt einkalíf. Við áttum bara góða stund þarna,“ sagði hann.

Luis Enrique, knattspyrnustjóri Barcelona, er sagður eiga stirt samband við Messi og hann kippti sér ekki upp við þetta mál á blaðamannafundi í gær. „Þetta snýst um þeirra einkalíf,“ sagði hann og bætti við að hann hefði ekki áhuga á slúðurfréttum. „Þetta hefur ekkert með fótbolta að gera. Ég skipti mér ekki að málum utan fótboltans.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×