Körfubolti

Leik bikarmeistaranna frestað | Veðrið truflar körfuna í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingibjörg Jakobsdóttir tekur hér vel á móti bikarnum um síðustu helgi.
Ingibjörg Jakobsdóttir tekur hér vel á móti bikarnum um síðustu helgi. Vísir/Þórdís
Körfuknattleikssamband Íslands hefur orðið að fresta tveimur af fjórum leikjum í 22. umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta í kvöld.

Leikir Grindavíkur og Hamars í Grindavík og Snæfells og Hauka í Stykkishólmi fara ekki fram í kvöld en báðir leikir áttu að hefjast klukkan 19.15.

Á heimasíðu KKÍ kemur fram að ákvörðunin var tekin eftir að Mótanefnd KKÍ ráðfærði sig við Vegagerðina og Veðurstofu Íslands.

Nýkrýndir bikarmeistarar Grindavíkur fá því aðeins lengri tíma til að njóta bikarsigurs síns um síðustu helgi.

Leikirnir sem fara fram í kvöld eru á milli KR og Val í DHL-höllinni og á milli Keflavíkur og Breiðabliks í Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×