Körfubolti

Toppliðið í engum vandræðum með botnliðið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Snæfell stefnir hraðbyri að deildarmeistaratitlinum.
Snæfell stefnir hraðbyri að deildarmeistaratitlinum. Vísir/Valli
Topplið Snæfells átti ekki í neinum vandræðum með botnlið Breiðabliks í Dominos-deild kvenna í körfubolta í dag.

Snæfell lagði grunninn að sigrinum strax í fyrri hálfleik, en þær voru yfir að honum loknum; 48-20. Eftirleikurinn var svo auðveldur og lokatölur 84-48.

Kristen Denise McCarthy skoraði 28 stig, tók 14 fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Allir leikmenn Snæfells komust á blað.

Hjá Breiðablik var Arielle Wideman atkvæðamest með tíu stig, átta fráköst og fjórar stoðsendingar.

Snæfell er því á toppnum með 38 stig, en Breiðablik rekur lestina með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×