Bílar

Laumast í tökur á James Bond

Finnur Thorlacius skrifar
Nú standa yfir tökur á næstu James Bond mynd, Spectre. Þessar myndir náðust af atriði sem tekið er upp við Blenheim Palace í Oxforskíri í Bretlandi.

Þar er James Bond á flótta á Aston Martin DB10 bíl sínum undir skothríð og svo virðist sem hann hafi verið óboðinn gestur í höllinni. Atriðið er tekið margoft upp frá öflugum jeppa með miklum tökubúnaði á toppi hans og eltir hann DB10 bílinn á flóttanum.

Í fyrstu sést þar sem ökumaður DB10 bílsins, sem væntanlega er ekki Daniel Craig, æfir sig fyrir tökuna og bakkar bílnum og snýr honum svo rösklega á punktinum fyrir flóttann. Síðan hefjast tökur á atriðinu.

Hér sést önnur taka frá austurríska skíðasvæðinu Sölden. Þar sést þar sem Range Rover Sport SVR og Land Rover Defender bílar eru teknir til kostanna í eltingaleik í um 3.000 metra hæð í fjöllunum í Sölden.






×