Fótbolti

Ancelotti fagnaði því Marcelo skoraði með hægri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Real Madrid er í góðri stöðu í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á Schalke í Þýskalandi í fyrri leik liðanna.

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, var ánægður með sigurinn en hann fagnaði síðara marki sinna manna sérstaklega en Marcelo var þar að veki með frábæru skoti.

„Við erum ekki vanir því að sjá Marcelo skora með hægri fætinum. Það kom mér á óvart,“ sagði hann í sjónvarpsviðtali eftir leik og brosti.

„En frammistaðan var góð. Við byrjuðum vel og það gekk betur að stjórna leiknum eftir fyrsta markið. Þá þurftum við ekki að setja mikla pressu á þá. Þetta var góður sigur fyrir okkur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×