Lífið

Talið víst að Jóhann hreppi Óskarinn

Jakob Bjarnar skrifar
Ef að líkum lætur hreppir Jóhann Jóhannsson Óskarinn að kvöldi sunnudags.
Ef að líkum lætur hreppir Jóhann Jóhannsson Óskarinn að kvöldi sunnudags.
Óskarsverðlaunaafhendingin fer fram á sunnudagskvöld og æsast leikar; Íslendingar eiga nefnilega sinn fulltrúa sem er tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson fyrir tónlistina í myndinni Therory of Everything sem byggð er á ævi vísindamannsins Stephen Hawking. Ef rýnt er í veðmálastuðla eins og þeir birtast á Betsson telja flestir að hann hreppi hnossið. Stuðullinn á hann er 1,45, sem þýðir einfaldlega að vilji einhver veðja 1000 krónum á að Jóhann vinni fær sá 1,450 krónur til baka. Það stefnir í einvígi milli hans og Alexandre Desplat sem á tónlistina í The Grand Budapest Hótel. Desplat er með stuðulinn 2,10. Aðrir koma vart til álita.

Jóhann hlýtur að teljast sigurstranglegur. Hann hlaut Golden Globe-verðlaunin í janúar, fyrstur Íslendinga, en sú hátíð og verðlaunaafhendingar þar þykja góð vísbending um hvernig fer með sigur á Óskarshátíðinni. En, þá ber til þess að líta að Jóhann fór tómhentur heim frá BAFTA-kvikmyndahátíðinni, þá var það Desplat sem hafði sigur. Vongóðir Íslendingar hljóta hins vegar að horfa til þess að sex af síðustu sjö sem höfðu sigur á Golden Globe unnu einnig Óskarinn. Og þá má geta þess að ein helsta og virtasta vefsíða á sviði kvikmynda, Indiewire, telur Jóhann sigurstranglegan.

Fróðlegt er að skoða hvernig fólk kýs að haga veðmálum sínum. Þannig er talið víst að Birdman verði kosin besta myndin (1,48). Aðeins Boyhood (2,50) getur, samkvæmt þessu, veitt henni keppni. Stuðullinn á Selmu er fáránlega hár, eða 125, sem þýðir að þeir sem leggja undir telja nánast útilokað að hún verði fyrir valinu. Eddie Redmayne í The Theory of Everything) þykir langlíklegastur sem besti leikari í aðalhlutverki (1,22) og þá telst nánast öruggt (1,01) að Julianne More í Still Alice fái Óskar sem besta leikkonan í aðalhlutverki. J.K. Simmons í Whiplash (1,01) fær verðlaunin sem besti karl í aukahlutverki og Patricia Arquette í Boyhood(1,01) sem leikkona í aukahlutverki. Það verður hins vegar leikstjórinn Alejandro Gonzales Inarritu (1,45) sem fær Óskarinn – ef marka má þá sem eru til í að hætta fé sínu í veðmál þar að lútandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.