Fótbolti

Messi er hetja

Pique og Messi fagna í vetur.
Pique og Messi fagna í vetur. vísir/getty
Þeir eru margir sem vildu spila fótbolta með Lionel Messi. Gerard Pique er þakklátur fyrir að vera í sama liði.

Messi er eins og venjulega í ofurmannlegu formi á þessari leiktíð. Hann er búinn að skora 32 mörk í 30 leikjum og leggja upp heilan haug af mörkum.

„Það er auðvelt að spila með Messi því hann er frábær hetja. Skilningur allra í liðinu er alltaf að verða betri og við að spila betur," sagði Pique en Barcelona ætlar sér stóra hluti á næstu mánuðum.

„Við eigum góðan möguleika á því að gera góða hluti á þessari leiktíð. Við verðum að halda okkur á þeim stað sem við erum og helst að gera betur. Við erum enn í Meistaradeildinni, komnir í undanúrslit í bikarnum og höldum pressu á Real Madrid í deildinni. Það eru spennandi tímar fram undan."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×