Fótbolti

Karatemeistarinn Messi og kúrekinn Suarez | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/AFP
Leikmenn Barcelona halda áfram að birtast í auglýsingum fyrir Qatar Airways en Barcelona og flugfélagið í Katar gerðu þriggja ára samning á sínum tíma. Leikmennirnir eru þó ekki í keppnisbúningunum í nýju auglýsingunni.  

Fyrsta auglýsingin, The Land of FC Barcelona, vakti mikla athygli og nú er að sjá hvort sú nýja slái líka í gegn. Auglýsingin var tekin upp á ensku, arabísku og katalónsku.

Að þessu sinni eru í aðalhlutverki þeir Lionel Messi, Neymar Jr., Gerard Piqué, Andrés Iniesta og Luis Suárez.

Markmið auglýsingarinnar er að auglýsa hina ýmsu áætlunarstaði flugfélagsins í heiminum og  leikmennirnir þurfa því að bregða sér í hin ýmsu gervi í auglýsingunni.

Qatar Airways flýgur meðal annars til Maldíveyja, Dallas, Paris og Seoul í Suður-Kóreu. Í auglýsingu má sjá Lionel Messi sem dæmi í gervi karatemeistara, og Luis Suárez sem bandarískan kúreka frá Vilta vestrinu.

Hér fyrir neðan má sjá þessa athyglisverðu auglýsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×