Real Madrid í bann eins og Barcelona? | FIFA-rannsókn farin í gang Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2015 11:30 Martin Odegaard og Emilio Butragueno. Vísir/Getty
Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur hafið rannsókn á félagskiptum ungra leikmanna til spænska stórliðsins Real Madrid og hefur óskað eftir upplýsingum um 51 skipti þar sem Real Madrid hefur náð sér í leikmann undir átján ára aldri. Emilio Butragueno, yfirmaður hjá Real Madrid, hefur staðfest það að FIFA hafi sóst eftir þessum upplýsingum hjá spænska knattspyrnusambandinu. Butragueno talaði jafnframt um það að þrátt fyrir þetta væru menn hjá félaginu alveg rólegir. FIFA dæmdi Barcelona í félagskiptabann til ársins 2016 fyrir brot á reglum FIFA í tilfellum tíu leikmanna undir átján ára sem komu í fótboltaakademíu félagsins árið 2013. Barcelona má ekki fá til sín nýjan leikmann fyrr en í janúar 2016. Meðal þeirra félagsskipta leikmanna sem FIFA vill skoða betur eru komur tíu spænskra landsliðsmanna og 23 erlendra leikmanna sem höfðu þegar verið skráðir hjá öðru spænsku félagi. Leikmenn undir átján ára hafa bara þrjár löglegar leiðir til að þess að komast að hjá erlendi félagi. Í fyrsta lagi ef foreldrar þeirra flytja til landsins án þess að það tengist fótboltanum, í öðru lagi ef þeir eru frá þjóð innan evrópska efnahagssvæðisins og á aldrinum 16 til 18 ára og í þriðja lagi ef að þeir búa á innan við hundrað kílómetra radíus frá félaginu. Real Madrid samdi á fimmtudaginn var við hinn sextán ára gamla Norðmann Martin Odegaard sem kemur frá Stromgodset.
Spænski boltinn Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Fleiri fréttir Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Sjá meira