Heilsa

Erótísk ljósmyndun

sigga dögg skrifar
Fagleg erótísk ljósmyndun sækir í sig veðrið erlendis
Fagleg erótísk ljósmyndun sækir í sig veðrið erlendis Vísir/Skjáskot
Constance og Eric eru erótískir ljósmyndarar. Þau taka myndir af pörum í ástarleikjum.

Hjá sumum pörum eru leikirnir í fullri alvöru og um raunverulegt kynlíf að ræða en öðrum einungis leikir og sviðsetningar. Ljósmyndarnarnir mynda parið í stúdíói eða á hóteli eða jafnvel á heimili viðkomandi pars.

Ljósmyndararnir segja að pör upplifi þetta oft sem mjög nána reynslu og noti þetta gjarnan til að krydda sambandið og fullnægja sýniþörf.

Sumar myndanna eru abstrakt svo pör geta kosið að hengja upp listaverkið fyrir allra augum.

Hér á landi hafa ekki margir gefið sig út fyrir erótíska ljósmyndun þó einhverjir.

Nú styttist í bæði bóndadaginn (21.janúar), valentínusardagin (14.febrúar) og konudaginn (22.febrúar), ætli erótísk ljósmynd myndi gleðja makann eða jafnvel vera kryddið sem ykkur vantar á nýju ári?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.