Fótbolti

Sonur Ronaldo heldur upp á Messi

Feðgarnir er pabbinn var valinn besti knattspyrnumaður heims á dögunum.
Feðgarnir er pabbinn var valinn besti knattspyrnumaður heims á dögunum. vísir/getty
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru kannski erkióvinir á vellinum en þrátt fyrir það heldur sonur Ronaldo upp á Messi.

Cris Junior stal senunni þegar faðir hans var valinn besti knattspyrnumaður heims. Hann hljóp þá upp á svið til pabba síns og krúttaði yfir sig.

Eftir athöfnina áttu Ronaldo og Messi góða stund saman í anddyrinu þar sem fram kom að sonurinn heldur mikið upp á Messi.

„Hann horfir á myndbönd af okkur og talar um þig," sagði Ronaldo við Messi og litli drengurinn fór aðeins hjá þér.

Messi hló og klappaði guttanum á kollinn.

„Þú ert skömmustulegur núna," sagði Ronaldo við soninn og hló dátt að sögn sjónarvotta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×