Fótbolti

Torres með tvö mörk og Atlético sló út Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Torres fagnar í kvöld.
Fernando Torres fagnar í kvöld. Vísir/Getty
Atlético Madrid tryggði sér sæti í átta liða úrslitum spænska bikarsins með því að slá út nágrannana í Real Madrid á Santiago Bernabéu í kvöld.

Liðin gerðu 2-2 jafntefli í seinni leiknum í kvöld en Atlético Madrid komst áfram á 2-0 heimasigri í fyrri leiknum. Atlético vann samanlagt 4-2 og mætir væntanlega Barcelona í átta liða úrslitunum.

Fernando Torres skoraði tvö mörk fyrir Atlético Madrid í kvöld en þetta voru fyrstu mörk hans síðan að hann snéri aftur heim til uppeldisfélags síns.

Fernando Torres skoraði á fyrstu mínútu í báðum hálfleiknum en fyrra mark hans kom eftir aðeins 46 sekúndna leik.

Sergio Ramos og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk Real Madrid í leiknum en þeir jöfnuðu metin í 1-1 (Ramos á 20. mínútu) og 2-2 (Ronaldo á 54. mínútu).

Atlético Madrid mætir sigurvegaranum úr Barcelona og Elche, sem mætast seinna í kvöld en Barcelona hefur 5-0 forskot frá því úr fyrri leik liðanna á Nývángi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×