Fótbolti

Messi með þrennu í sigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi og Neymar fagna marki þess fyrrnefnda.
Messi og Neymar fagna marki þess fyrrnefnda. vísir/getty
Barcelona átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Deportivo La Coruna að velli á Riazor í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Lionel Messi var í stuði í kvöld og skoraði þrennu. Ivan Rakitic lagði upp tvö mörk fyrir Argentínumanninn og Luis Suárez eitt. Messi er nú kominn með 19 mörk í deildinni en aðeins Cristiano Ronaldo hefur skorað fleiri, eða 27 mörk.

Brasilíumaðurinn Sidnei varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark sjö mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 0-4 fyrir Barcelona sem minnkaði forystu Real Madrid á toppi deildarinnar niður í eitt stig. Madrídingar eiga þó leik inni á Börsunga.

Barcelona sækir Elche heim á laugardaginn í næsta leik sínum í spænsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×