Körfubolti

Njarðvík fór í gang í seinni hálfleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björg Guðrún Einarsdóttir og stöllur hennar þurftu að játa sig sigraðar í kvöld.
Björg Guðrún Einarsdóttir og stöllur hennar þurftu að játa sig sigraðar í kvöld. vísir/vilhelm
Njarðvík varð í kvöld þriðja liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta kvenna þegar liðið lagði KR, 56-49, suður með sjó.

Liðin buðu ekki upp á neina skotsýningu í Ljónagryfjunni í kvöld en skotnýing liðanna var með slakasta móti. KR-konur hittu aðeins úr 39% skota sinna innan teigs og 14% úr þriggja stiga skotum. Skotnýting Njarðvíkur var snöggtum skárri; 37% innan teigs og 26% fyrir utan.

Gestirnir úr Vesturbænum voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum með 14 stigum, 16-30, en Njarðvík skoraði aðeins fimm stig í 2. leikhluta.

Seinni hálfleikurinn var hins vegar eign heimakvenna. KR spilaði ágætlega fyrstu mínútur hans en Njarðvík skellti í lás í vörninni um miðjan 3. leikhluta.

Njarðvíkurstúlkur breyttu stöðunni úr 19-37 í 33-37 á síðustu fimm mínútum leikhlutans og náðu svo loks forystunni þegar þrjár mínútur voru eftir, 52-49. KR skoraði ekki stig á síðustu fimm mínútum leiksins og svo fór að Njarðvík vann sjö stiga sigur, 56-49.

Nikitta Gartrell var atkvæðamest í liði Njarðvíkur með 24 stig, 15 fráköst og fimm stoðsendingar. Björk Gunnarsdóttir kom næst með 10 stig.

Bergþóra Holton Tómasdóttir skoraði mest fyrir KR, eða 11 stig. Hún tók einnig 10 fráköst.

Í gær tryggðu Snæfell og Grindavík sér sæti í undanúrslitunum en það ræðst á morgun hvort það verður Keflavík eða Breiðablik sem verður fjórða liðið í undanúrslitunum.

Tölfræði leiks:



Njarðvík-KR 56-49 (11-16, 5-14, 17-7, 23-12)


Njarðvík: Nikitta Gartrell 24/15 fráköst/5 stoðsendingar, Björk Gunnarsdótir 10/4 fráköst, Andrea Björt Ólafsdóttir 8/4 fráköst, Erna Hákonardóttir 8/6 fráköst, Guðbjörg Ósk Einarsdóttir 6, Svala Sigurðadóttir 0, Snjólaug Ösp Jónsdóttir 0, María Ben Jónsdóttir 0, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 0, Júlia Scheving Steindórsdóttir 0, Elínora Guðlaug Einarsdóttir 0, Ása Böðvarsdóttir-Taylor 0.

KR: Bergþóra Holton Tómasdóttir 11/10 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 10/6 fráköst/5 stoðsendingar, Simone Jaqueline Holmes 10/13 fráköst, Helga Einarsdóttir 10/12 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 6/5 fráköst, Sólrún Sæmundsdóttir 2, Perla Jóhannsdóttir 0, Elín Þóra Helgadóttir 0, Salvör Ísberg 0, Anna María Ævarsdóttir 0, Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir 0.

Dómarar: Halldor Geir Jensson, Steinar Orri Sigurðsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×