Finnur hættir með KR-konur og tekur við Skallagrími Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2015 14:11 Finnur Jónsson. Vísir/Ernir
Finnur Jónsson, fyrrum leikmaður Skallagríms, hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Skallagríms í Dominos-deild karla en þetta kemur fram á heimasíðu Skallagríms og heimasíðu KR. Finnur hættir með kvennalið KR en hann var á sínu fyrsta tímabili með liðið í Dominos-deild kvenna. Finnur tekur við starfi Péturs Ingvarssonar sem hætti með Skallagrímsliðið á dögunum. Skallagrímur er í 10. sæti deildarinnar með tvo sigra og níu töp en þrjú neðstu lið deildarinnar hafa öll fjögur stig. KR-konur eru því án þjálfara en fyrsti leikur liðsins eftir áramót er á móti Val 7. janúar næstkomandi. „Finnur hefur þjálfað úrvalsdeildarlið KR í Dominos deild kvenna í vetur en hann hættir þjálfun liðsins nú þegar hann tekur við Skallagrími. Hann var áður aðstoðarþjálfari meistaraflokks Skallagríms og yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Einnig þjálfaði Finnur meistaraflokk kvenna hjá Skallagrími í nokkur ár. Þá hefur hann komið að þjálfun yngri landsliða Íslands í körfubolta. Áður var Finnur leikmaður meistaraflokks Skallagríms," segir á heimasíðu Skallagríms. „Finnur Jónsson hefur tekið við karlaliði Skallgríms sem leikur í úrvalsdeild. Finnur er búsettur í Borgarnesi og þjálfaði þar áður en hann tók við KR–liðinu. KR-ingar þakka Finni fyrir samstarfið óska honum velfarnaðar í nýju starfi. Vinna er þegar farin í gang í leit að nýjum þjálfara fyrir kvennaliðið en næsti leikur liðsins er á Hlíðarenda, miðvikudaginn 7.janúar," segir á heimasíðu KR.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Pétur Ingvarsson hættir með Skallagrím Pétur Ingvarsson mun ekki stýra liði Skallagríms í seinni hluta Dominos-deildar karla í körfubolta en hann hefur komist að samkomulagi um að hætta að þjálfa liðið. 2. janúar 2015 12:12 Mest lesið Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Enski boltinn Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Fótbolti „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Dagskráin í dag: Enski boltinn, íslenskur körfubolta og það besta frá Bandaríkjunum Sport Fleiri fréttir „Hann er með vonir og væntingar heils bæjarfélags á bakinu“ „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Uppgjörið: KR - Tindastóll 95-116 | Jólamaturinn fór betur í gestina Uppgjörið: Höttur - Haukar 86-89 | Gestirnir unnu botnslaginn á Egilsstöðum Butler vill í burtu: Tilbúinn að spila með öllum liðum nema Miami Heat Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Fótbrotnaði í NBA leik Var aðdáandi Chiefs áður en Mahomes og Travis mættu til sögunnar „Stoltur af strákunum sem eru að taka töluvert meiri ábyrgð“ „Það er krísa“ Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 87-89 | Langþráður sigur Álftnesinga Tryggvi Snær tók flest fráköst í góðum sigri Uppgjörið og viðtöl: ÍR - Grindavík 98-90 | ÍR sigraði í framlengdri rússibanareið Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 106-104 | Heimasigur í hörkuleik Íslenska körfuboltaárið hefur aldrei byrjað fyrr Friðrik Ingi orðinn þjálfari Hauka Sakar NBA-deildina um að vera á móti Houston Rockets Lauk árinu með fjörutíu stiga leik Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar Martin stiga- og stoðsendingahæstur í tapi Berlínarmanna Sá þriðji í sögunni til að spila fullkominn leik De'Sean Parsons mætir aftur til Hauka Meiddist eftir aðeins eina sekúndu Kostaði hann fjórtán milljónir að nota f-orðið í viðtali Stiklað á stóru sigrunum: „Erum stolt af því að vera íþróttabær“ Brotist inn til Doncic Grindvíkingar um daginn örlagaríka: „Í fyrsta sinn sem ég missi kúlið“ Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu Elvar og félagar upp úr fallsæti eftir langþráðan sigur Tryggvi og Bilbæingar luku árinu með sigri Sjá meira
Pétur Ingvarsson hættir með Skallagrím Pétur Ingvarsson mun ekki stýra liði Skallagríms í seinni hluta Dominos-deildar karla í körfubolta en hann hefur komist að samkomulagi um að hætta að þjálfa liðið. 2. janúar 2015 12:12