Enski boltinn

Jóhann Berg á skotskónum í tapi | Eiður áfram með Bolton

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Bolton fagna sigurmarkinu.
Leikmenn Bolton fagna sigurmarkinu. Vísir/Getty
Jóhann Berg Guðmundsson þrumaði boltanum í netið af 20 metra færi fyrir Charlton í dag sem tapaði gegn Blackburn í FA-bikarnum í dag.

Jóhann Berg jafnaði metin á 54. mínútu, en fjórum mínútum síðar kom Chris Taylor Blackburn aftur yfir með sínu öðru marki. Lokatölur 2-1 Blackburn í vil.

Kári Árnason og félagar í Rotherham fengu skell gegn Bournemouth á heimavelli, 1-5. Kári lék allan leikinn í liði Rotherham sem komst yfir í leiknum.

Eiður Smári Guðjohnsen kom inná á 88. mínútu í liði Boltan sem lagði Wigan að velli. Zach Clough skoraði eina mark leiksins stundarfjórðungi fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×