Fótbolti

Torres gæti spilað gegn Real í vikunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Torres í stúkunni í gær.
Torres í stúkunni í gær. Vísir/Getty
Fernando Torres, sem gekk á dögunum til síns uppeldisfélags Atletico Madrid, gæti snúið aftur á völlinn með Madrídarliðinu þegar liðið mætir erkifjendunum í Real Madrid á miðvikudaginn.

Liðin mætast þá í konungsbikarnum á Spáni, en Torres var áhorfandi í gær þegar Atletico vann góðan sigur á Levante, 3-1. Madrídarliðið fylgir Barcelona og hinu Madrídarliðinu í Real fast á eftir á toppnum.

„Fernando Torres? Við munum sjá. Hann mun æfa með okkur á ný og við munum sjá hvort hann sé klár í að spila gegn Real í bikarnum," sagði Simeone eftir leikinn í gær.

„Ef svo er, þá munum við taka ákvörðun. Við munum vinna með þessi góðu úrslit gegn Levante og undirbúa okkur fyrir leikinn í bikarnum."

Atletico mætir Real á miðvikudaginn eins og fyrr segir og svo næstu helgi munu þeir mæta Barcelona í algjörum toppslag á Spáni. Stór vika framundan fyrir þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×