Körfubolti

Ingi Þór: Gerum ekki óraunhæfar kröfur til 2015

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells. Vísir/Daníel
Keppni hefst á ný í Domino's-deild kvenna í kvöld er Íslandsmeistarar Snæfells mæta bikarmeisturum Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Þessi lið áttust við bæði í lokaúrslitum deildarinnar í vor sem og bikarúrslitaleiknum fyrir tæpu ári síðan.

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var fyrr í dag valinn besti þjálfari fyrri hluta tímabilsins í Domino's-deild kvenna en lið hans trónir á toppnum með 26 stig af 28 mögulegum, fjórum stigum á undan Keflavík og Haukum.

Úrvalslið kvenna í Domino's-deild kvenna með besta dómaranum, Sigmundi Má Herbertssyni og besta þjálfaranum, Inga Þór.Vísir/Ernir
„Það er alltaf gaman að sjá hvernig fólk kemur undan jólunum og við mætum spenntar til leiks í kvöld,“ sagði Ingi Þór í samtali við Vísi í dag. „Síðast vorum við í hörkuleik á Ásvöllum þar sem við unnum í framlengingu.“

Þrátt fyrir gott gengi fyrir áramót veit hann að leikmenn hans eigi meira inni en þeir hafi sýnt. „Þær vita það sjálfar að þær geta betur og okkur finnst að við eigum talsvert inni. Við erum að spila á fáum leikmönnum og þurfum að ná því allra besta fram úr þeim öllum til að ná árangri.“

Snæfell varð Íslandsmeistari kvenna í vor í fyrsta sinn í sögu félagsins og varð þar að auki deildarmeistari og meistari meistaranna. Liðið vann þar að auki 27 af 28 deildarleikjum sínum á árinu 2014.

Það var mikil gleði í Stykkishólmi eftir að Snæfell varð Íslandsmeistari í vor.Vísir/ÓskarÓ
„Það er ósanngjarnt að ætlast til þess að 2015 verði betra ár en 2014,“ segir Ingi Þór. „Síðasta ár var framar öllum vonum og titilinn í fyrra eitt af mínum helstu afrekum á ferlinum - að vinna nánast án Kana gegn þessum sterku liðum sem við mættum.“

„Svo misstum við mjög sterka leikmenn í sumar en María [Björnsdóttir] og Gunnhildur [Gunnarsdóttir] hafa komið mjög sterkar inn sem og útlendingurinn okkar. Ég er afar stoltur af því hvernig þetta hefur virkað.“

Hann reiknar auðvitað með því að Haukar mæti grimmir til leiks í kvöld enda á Snæfell möguleika á að auka muninn á milli liðanna í sex stig. „Þar að auki eru Grindavík og Valur ekki langt undan í næstu sætum á eftir. Það eru margir leikir á tímabilinu en hver þeirra telur þegar deildin er jöfn og spennandi.“

Leikur liðanna hefst klukkan 19.30 og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×