Fótbolti

Grátbáðu þjálfarann um að refsa ekki Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi þurfti að sætta sig við að byrja á bekknum um síðustu helgi.
Lionel Messi þurfti að sætta sig við að byrja á bekknum um síðustu helgi. Vísir/Getty
Sport-blaðið í Barcelona fjallar um ástandið innan Barcelona-liðsins í forsíðufrétt í dag en þar kemur fram að fyrirhugaður sáttafundur í dag ráði miklu um framhaldið en þjálfarinn (Luis Enrique) og skærasta stjarnan (Lionel Messi) talast ekki við þessa dagana.

Sport segir frá því að hótanir og almenn leiðindi hafi einkennt samskipti Lionel Messi og Luis Enrique síðustu vikurnar og að Messi æfi nú ekki lengur með liðinu. Messi hefur æft einn frá tapinu á móti Real Sociedad um helgina og gefur upp þá ástæðu að hann sé slæmur í maganum.

Luis Enrique trúir honum ekki og ætlaði samkvæmt heimildum Sport að refsa leikmanninum opinberlega fyrir að skrópa á æfingarnar. Fyrirliðarnir Xavi, Andres Iniesta og Sergio Busquet grátbáðu hinsvegar þjálfarann um að gera það ekki því það hefði þýtt algjörlega óbærilegt ástand innan hópsins.

Mundo Deportivo, annað íþróttablað í Barcelona, slær því upp að sáttafundur í dag ráði öllu umframhaldið. Fyrirliðarnir þrír munu þar reyna að ræða við Messi og leita sátta í þessu máli.

Ósætti Lionel Messi og Luis Enrique er risamál í Katalóníu en kannanir sýna þó að Barcelona-búar standa með Messi í þessu máli og 93 prósent telja að Messi fái það í gegn sem hann vill.

Lionel Messi hefur skorað 23 mörk í 23 leikjum á þessu tímabili þar af 15 mörk í 17 leikjum í spænsku deildinni. Messi hefur byrjað alla leiki nema einn í spænsku deildinni, tapleikinn á Real Sociedad um síðustu helgi.

Messi var með 7 mörk og 9 stoðsendingar í fyrstu átta leikjum Barcelona sem fékk í þeim 22 stig af 24 mögulegum. Messi hefur ekki gefið stoðsendingu í síðustu 9 leikjum en hefur skorað 8 mörk í þeim en þessi átta mörk komu öll í þremur leikjanna.

Forsíða Sport-blaðsins í Barcelona í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×