Messi, Neymar og Suárez skoruðu allir í stórsigri í bikarnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. janúar 2015 22:50 Neymar og Lionel Messi skoruðu báðir í kvöld. vísir/getty
Barcelona fór létt með að pakka Elche saman, 5-0, í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í fótbolta í kvöld, en leikið var á Nývangi í Katalóníu. Brasilíumaðurinn Neymar braut ísinn fyrir Börsunga á 35. mínútu með fyrsta marki leiksins, en fimm mínútum síðar kom Luis Suárez heimamönnum í 2-0. Leikurinn var í raun búinn í hálfleik því Lionel Messi kom Barcelona í 3-0 með marki úr vítaspyrnu á 45. mínútu og því öll framlína heimamanna komin á blað. Í seinni hálfleik bætti bakvörðurinn Jordi Alba við marki fyrir Barcelona á 56. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Neymar annað mark sitt og fimmta mark Börsunga. Seinni leikurinn fer fram eftir viku á heimavelli Elche, en þar ætti Luis Enríque, þjálfari Barcelona, að geta hvílt meira og minna allt byrjunarliðið. Áhuginn fyrir leiknum í Katalóníu í kvöld var ekki mikill, en aðeins 27.000 manns voru mættir á Nývang sem þykja fréttir á þeim bænum. Camp Nou tekur rétt tæplega 100.000 manns í sæti og var því ansi tómlegt á vellinum í kvöld.For those that didn't believe the 27,099 figure at the Camp Nou tonight... pic.twitter.com/nKrHdDGFpZ— AS English (@English_AS) January 8, 2015
Spænski boltinn Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni Sjá meira