Lífið

Vöðvum virðist hafa verið bætt á Bieber

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Mikill munur er á vöðvunum á Bieber, á þessum tveimur myndum.
Mikill munur er á vöðvunum á Bieber, á þessum tveimur myndum.
Svo virðist sem bætt hafi verið í upphandleggsvöðva, kviðvöðva og fleira með myndvinnsluforriti til þess að söngvarinn frægi líti betur út í undirfataauglýsingu Calvin Klein. Aðstandendur vefsins Breatheheavy.com segjast hafa komist yfir myndir af Bieber áður en þeim var breytt með myndvinnslutækni.

 
Exclusive: @JustinBieber’s unretouched @CalvinKlein photo #BreatheHeavy #MyCalvins

A video posted by BreatheHeavy.com (@breatheheavycom) on Jan 8, 2015 at 1:19pm PST

Undirfatauglýsingin hefur vakið mikið umtal á netinu og víðar, eftir hún var birt í vikunni. Viðbrögðin hafa verið afar blendin, enda eru afar skiptar skoðanir um kappann.

Myndirnar sem ganga nú um vefinn þykja ekki vera eina vísbendingin um að forrit hafi verið notað til að stækka vöðva Bieber. Því einnig hefur verið bent á hversu ólíkur Bieber er í myndbandinu sem var tekið bakvið tjöldin miðað við endanlegu útgáfuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.