Bíó og sjónvarp

Leikstjórar til Frakklands

Freyr Bjarnason skrifar
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri, er á leið til Frakklands.
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri, er á leið til Frakklands. Vísir/GVA
Leikstjórarnir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og Rúnar Rúnarsson kynna sínar nýjustu myndir á kvikmyndahátíðinni Les Arcs sem verður haldin í sjötta sinn í skíðaparadís í Bourg-Saint Maurice í Frakklandi 13. til 30. desember.

Hafsteinn Gunnar, sem kynnti París norðursins á sömu hátíð fyrra, mætir með nýjustu mynd sína og Huldars Breiðfjörð til leiks í ár sem nefnist Tréð.

Rúnar mun kynna mynd sína Þrestir en upptökur á henni fóru mestmegnis fram á Vestfjörðum í sumar.

Á hátíðinni verður í fyrsta sinn veittur þróunarstyrkur til einnar myndar upp á rúmar 600 þúsund krónur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×