Fótbolti

Biðin eftir Meistaradeildarmarkinu nú 834 mínútur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kolbeinn fagnar marki í leik með Ajax.
Kolbeinn fagnar marki í leik með Ajax. Vísir/AFP
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax eru í heimsókn í París í kvöld þar sem liðið mætir Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni (beint á S2 Sport 4 kl. 19.45). Það er lítið undir í leiknum nema kannski fyrir okkar mann að komast loksins á blað í Meistaradeildinni.

Íslenski landsliðsframherjinn kom inn á sem varamaður í hollensku deildinni um síðustu helgi en hefur byrjað fyrstu fjóra leiki Ajax í Meistaradeildinni. PSG og Barcelona hafa þegar tryggt sér sæti í sextán liða úrslitunum og Ajax á því ekki lengur möguleika á því að komast áfram. Kolbeinn Sigþórsson á að baki 11 leiki og 834 mínútur í Meistaradeildinni en á enn eftir að koma boltanum í netið. Það væri ekki leiðinlegt fyrir hann að gera það á Parc des Princes.

Manchester City er að berjast fyrir lífi sínu í E-riðli og þarf helst að vinna Bayern München á heimavelli í kvöld (beint á S2 Sport kl. 19.45) til að eiga möguleika á öðru sætinu en Bæjarar hafa þegar tryggt sér sigur í riðlinum. City er með 2 stig eða tveimur færri en CSKA og Roma sem mætast í Moskvu (Beint á S2 Sport kl. 17.00).

Í G-riðli geta Chelsea og Schalke bæði tryggt sér sæti í 16 liða úrslitunum þegar þau mætast í Þýskalandi (beint á S2 Sport3 kl. 19.45). Chelsea er með átta stig en Schalke fimm. Sporting (4 stig) tekur síðan á móti Maribor (3 stig).

Porto er komið áfram í H-riðli og Shakhtar vantar bara eitt stig. til þess að senda Bate út.


Tengdar fréttir

Er Kolbeinn nokkuð kólnaður?

Kolbeinn Sigþórsson náði ekki að skora í síðustu þremur leikjum íslenska fótboltalandsliðsins og er þetta í fyrsta sinn á landsliðsferlinum sem hann hefur spilað þrjá heila landsleiki í röð án þess að skora. Búinn að bíða í 283 mínútur eftir að ná Ríkharð Jónssyni í 2. sætinu á markalista landsliðsins.

Kolbeinn: Framherjar verða að halda ró sinni þó illa gangi

Kolbeinn Sigþórsson lætur gagnrýnisraddir ekki setja sig úr jafnvægi. Á ýmsu hefur gengið hjá liði hans, Ajax í Hollandi, en hann segist ánægður þar þó að hann hafi verið hársbreidd frá því að yfirgefa félagið.

Skorar Kolbeinn á Nývangi í kvöld?

Barcelona og Ajax mætast í stórleik kvöldsins í Meistaradeildinni í fótbolta og þar verður íslenskur landsliðsframherji vonandi í sviðsljósinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×