Bíó og sjónvarp

Plötusnældur í Berlín

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Ein plötusnældanna sem myndin fjallar um.
Ein plötusnældanna sem myndin fjallar um.
Titill: Sounds Queer

Leikstjóri: Dan Bahl

Sounds Queer er heimildarmynd um þrjá kvenkyns plötusnúða í höfuðborg teknósins, Berlín. Í myndinni er skyggnst inn í líf og störf þessara kvenna, Tama Sumo, Resom og Ena Lind, og við fáum innsýn í umhverfi þeirra þar sem karlar eru oftast yfirgnæfandi.

Í þessu samhengi er þó rétt að minnast á óformlega könnun sem Fréttablaðið gerði í ágúst þar sem fram kom að um 45% plötusnúða sem tróðu upp í Reykjavík í mánuðinum voru kvenkyns.

Myndin verður sýnd frítt í kvöld kl. 20.30 á skemmtistaðnum Húrra og að sýningu lokinni verður haldið partí með þremur vinsælustu kvenkyns plötusnúðum Íslands, þeim DJ Yamaho, DJ Sunnu Ben og DJ Möggu Maack.

Þetta er frábær mynd fyrir alla tónlistaráhugamenn, sérstaklega raftónlistarnörda en aðalpersónurnar segja frá því hvernig raftónlistin kom inn í líf þeirra og breytti því.

Myndin dregur upp afar áhugaverða mynd af Berlín og lífi þessara þriggja kvenna og vekur skemmtilegar spurningar um ástina á tónlist, stétt plötusnúða og femínisma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.