Skoðun

Samgöngustofa – undir einu þaki

Þórólfur Árnason skrifar
Um mitt síðasta ár varð Samgöngustofa til úr fjórum stofnunum: Flugmálastjórn, Umferðarstofu og stjórnsýsluhlutum Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar. Frá þeim tíma hefur stofnunin starfað á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu en kemur sér þessa dagana loksins fyrir í nýjum höfuðstöðvum á horni Háaleitisbrautar og Ármúla. Það er áþreifanlegur lokaþáttur í sameiningunni sem hefur verið vandasamt en jafnframt lærdómsríkt ferli.

Öryggi og fagmennska

Í stuttu máli má segja að Samgöngustofu sé ætlað að vinna að þróun öflugra og öruggra samgangna. Það gerum við meðal annars með því að nýta aukna tækniþekkingu og ítarlegar rannsóknir, sinna vönduðu eftirliti og ástunda betri stjórnsýslu því með öllu þessu hefur náðst umtalsverður árangur í fækkun alvarlegra slysa þeirra sem eru á faraldsfæti. Samnýting á þekkingu hefur þannig og mun áfram skila góðum arði fyrir íslenskt samfélag.

Opinberu eftirliti er fyrst og fremst ætlað að tryggja sem best öryggi fólks. Eftirlit er ekki síður mikilvægt til þess að við sem þjóð getum staðist alþjóðlegar úttektir og staðið jafnfætis þeim löndum sem við eigum í alþjóðlegri samkeppni við. Þetta er grundvallaratriði fyrir grunnstoðir atvinnulífsins eins og til dæmis skipaútgerðir og flugrekendur. Með sameiningu eftirlits í samgöngumálum í eina stofnun samnýtum við reynslu með það í huga að eftirlitið verði hagkvæmt og skilvirkt án þess að tapa gæðum eða veita afslátt af öryggi.

Tækifærin

Með flutningum í sameiginlegt húsnæði felast mörg tækifæri um samræmda og greiða þjónustu sem hefst strax með einum og sama afgreiðslutímanum sem áður var mismunandi eftir staðsetningum. Í beinu framhaldi munum við byggja áfram ofan á það verk sem hafið var um mitt síðasta ár með því að leggja aukna áherslu á rafræna stjórnsýslu og sjálfsafgreiðslu sem dregur úr kostnaði og gerir viðskiptavinum kleift að ljúka sínum málum á þeim tíma sem þeim best hentar. Þetta sáum við til dæmis vel þegar sjómönnum og útgerðum var gert fært að sjá sjálf um lögskráningu sjómanna. Svipuð þróun er markmiðið í öðrum greinum en fyrst og síðast viljum við halda góðu sambandi við viðskiptavini okkar og veita þeim örugga og greiða þjónustu. Þar er lykilorðið samvinna, því markmið um öryggi og fagmennsku geta allir verið sammála um. Í gildum Samgöngustofu sem allt starfsfólk tók þátt í að móta má sjá það sem við viljum standa fyrir: Jákvæðni, fagmennska, traust og virðing.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×