Bíó og sjónvarp

Uppáhaldsbíómyndirnar mínar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Emmanuelle Chriqui.
Emmanuelle Chriqui. Vísir/Getty
Leikkonan Emmanuelle Chriqui er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Entourage og í kvikmyndinni You Don't Mess With the Zohan.

Hún velur hér þær fimm bíómyndir sem eru í uppáhaldi hjá henni.

The Shawshank Redemption (1994)

„Þetta er bara ein af þessum myndum sem… Leikurinn er stórkostlegur – hann hefur gríðarleg áhrif á þig – og sagan líka.“





Dead Man Walking (1995) 

„Ég held að ég elski andhetjuna svolítið. Þetta er ein besta frammistaða Seans Penn. Mér finnst ótrúlegt að hann nái á endanum að láta þig halda með honum og vona að hann lifi eftir að hann er búinn að fremja þessa hrottafengnu glæpi. Bara Sean Penn gæti þetta. Mér finnst hann æðislegur.“





Jacob‘s Ladder (1990)

„Þessi mynd er stórkostleg. Hræðileg, spennandi en svo góð að hún stenst tímans tönn. Hún er enn hrollvekjandi í dag.“





The Intouchables (2012)

„Þið þurfið að hlaupa, ekki ganga, og fara að sjá þessa mynd. Hún er frábær. Ég elska erlendar myndir.“





Y Tu Mamá También (2001)

„Elska þessa mynd. Held að ég hafi horft á hana þúsund sinnum.“










Fleiri fréttir

Sjá meira


×