Skoðun

Fjárfestum í fólki

Skúli Helgason skrifar
Ungir karlmenn eru fjölmennastir í hópi þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna samkvæmt nýrri skýrslu Rauða kross Íslands. Sami hópur er líka áberandi í röðum þeirra framhaldsskólanema sem hætta í námi en sem kunnugt er hefur brotthvarf á Íslandi um árabil verið á bilinu 25-30% eða helmingi hærra en í ríkjum OECD að meðaltali og tvöfalt til þrefalt hærra en annars staðar á Norðurlöndunum.

Löngu tímabært er að bregðast við þessum staðreyndum í skólakerfinu með auknu samstarfi grunnskóla og framhaldsskóla, ríkis og sveitarfélaga. Samfelld ábyrgð á rekstri skólastiga frá leikskóla fram að háskóla væri ein leið til að auka samfellu náms í þágu nemenda og sjálfsagt er að heimila einstökum sveitarfélögum að spreyta sig á rekstri tiltekinna skóla, eins og Reykjavík, Garðabær og Hafnarfjörður hafa þegar óskað eftir.

Reykjavík greiðir í ár 4 milljarða króna í fjárhagsaðstoð til einstaklinga án atvinnu og bótaréttar úr atvinnuleysistryggingakerfinu. Slíkt úrræði verður alltaf að vera til staðar en mikið er til vinnandi fyrir viðkomandi einstaklinga og samfélagið að við náum að breyta áherslum í þá veru að fleiri úr þessum hópi komist til vinnu og sjálfsbjargar. Þar er hlutverk skólanna mikilvægt, ekki síst grunnskólans, þar sem tækifærin til að draga úr brotthvarfsáhættu eru mest að mínu mati.

Leiðin liggur í gegnum aukna áherslu á virkni nemenda og námsval við hæfi hvers og eins. Við eigum að setja okkur það markmið að öll börn og ungmenni læri það sem þau hafa áhuga á og nýtir best hæfileika þeirra. Við þurfum að skapa fagfólki í skólum þá umgjörð sem dregur fram það besta í hverjum nemanda. Það kallar vissulega á meiri stuðning í skólastofunni og aukna þverfaglega samvinnu kennara og sérhæfðs starfsfólks við að mæta ólíkum þörfum nemenda.

Þróuð hafa verið skimunarpróf hér á landi til að greina snemma þá nemendur sem eru í mestri brotthvarfshættu. Til þessa hafa slík próf aðeins verið notuð í framhaldsskólum hérlendis og grunnskólum í Noregi en næsta skref er að hagnýta þau í grunnskólum borgarinnar til að fyrirbyggja frekari vanda síðar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×