Bíó og sjónvarp

Vinnsla á Prometheus 2 farin af stað

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ekki er ljóst hvort leikarar fyrstu myndarinnar verði í framhaldsmyndinni.
Ekki er ljóst hvort leikarar fyrstu myndarinnar verði í framhaldsmyndinni.
Fox og Ridley Scott hafa ráðið Michael Green til að skrifa handrit að Prometheus 2, framhaldsmynd af Prometheus sem frumsýnd var árið 2012. Michael hefur unnið við handrit í sjónvarpsþáttum á borð við Smallville og Heroes.

Ekki er komin dagsetning á hvenær framhaldsmyndin lítur dagsins ljós. Ridley Scott leikstýrði þeirri fyrstu en óljóst er hvort hann mun setjast aftur í leikstjórastólinn. Rétt eftir að fyrsta myndin var frumsýnd tilkynnti hann að Prometheus yrði þríleikur.

Noomi Rapace, Michael Fassbender, Guy Pearce, Idris Elba og Charlize Theron léku aðalhlutverkin í Prometheus en hún halaði inn rúmlega þrjú hundruð milljónir dollara á heimsvísu þegar hún var í bíó, 36,5 milljarða króna.

Prometheus var að hluta til tekin upp hér á landi en tökur fóru fram í júlí árið 2011 við rætur Heklu. Íslenskt landslag gegndi veigamiklu hlutverki í myndinni og þótti tæknileg vinnsla kvikmyndarinnar skara fram úr.


Tengdar fréttir

Mælir með Prometheus

Leikarinn Michael Fassbender telur að myndin Prometheus verði mynd ársins 2012 en eins og flestir vita var myndin að hluta til tekin upp á Íslandi. Fassbender, sem leikur í mynd Ridley Scott ásamt leikkonunum Noomi Rapace og Charlize Theron, hrósar handritinu sérstaklega. „Handritið er svakalega vel unnið og áhugavert. Þetta er alvöru thriller sem allir verða að sjá,“ segir Fassbender í viðtali við breska InStyle en hann hafði mikla ánægju af því að vinna undir leikstjórn Scotts en Prometheus á að vera undanfari Alien-myndanna.

Prometheus verður þríleikur

Svo virðist sem að breski leikstjórinn Ridley Scott sé ekki reiðubúinn að yfirgefa söguheim Prometheus. Hann tilkynnti í dag að tvær framhaldsmyndir væru í bígerð.

Framhald af Prometheus

Leikstjórinn Ridley Scott vill taka upp framhald myndarinnar Prometheus, þrátt fyrir að enn eigi eftir að frumsýna fyrstu myndina sem var að hluta til tekin upp hérlendis síðasta sumar.

Óvíst með framhald Prometheus

Ekki hefur verið ákveðið hvort framhald verður gert af spennumyndinni Prometheus. Þetta segir handritshöfundurinn Damon Lindelof. Prometheus fór beint á toppinn yfir aðsóknarmestu myndir Bretlands um síðustu helgi og hefur fengið góðar viðtökur gagnrýnenda.

Prometheus kynnt í París

Aðstandendur kvikmyndarinnar Prometheus fóru til Parísar á dögunum þar sem þeir kynntu myndina fyrir fjölmiðlafólki. Myndarinnar hefur verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu en hún er ekki frumsýnd fyrr en í byrjun júlí. Íslendingar bíða margir hverjir spenntir en hluti af tökunum fór fram hér á landi, meðal annars við Dettifoss.

Prometheus með betri þrívídd en Avatar

Benedict Wong, sem leikur Ravel í spennumyndinni Prometheus, er mjög spenntur fyrir útkomunni. "Ef þú varst hrifinn af þrívíddinni í Avatar þá verðurðu enn hrifnari af þrívíddinni í þessari mynd. Hún er í sérflokki,“ sagði Wong. "Þeir notuðu RED-myndavélar og tæknimennirnir voru mjög spenntir fyrir þeim.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×