Körfubolti

Konurnar af stað í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snæfell vann deildarmeistaratitilinn með miklum yfirburðum en Haukakonur eru nýkrýndir bikarmeistarar og tóku annað sætið með nokkrum yfirburðum.

Það kemur því kannski fáum á óvart að næstum því allir spámenn Fréttablaðsins búast við að liðin fari í gegnum undanúrslit úrslitakeppninnar og mætist í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn alveg eins og í bikarúrslitaleiknum á dögunum.

Deildarmeistarar Snæfells mæta Val og er fyrsti leikurinn í Stykkishólmi klukkan 15.00 í dag. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í úrslit. Snæfell tapaði síðasta deildarleik í lok nóvember og er búið að vinna alla fimm leiki sína á móti Val í vetur þar á meðal bikarleik í Vodafonehöllinni. Það er þegar orðið ljóst að sigurvegari þessa einvígis nær sögulegum árangri því hvorugt félagið hefur átt kvennalið í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Þau sátu bæði eftir í undanúrslitum í fyrra, þar af Valskonur eftir oddaleik á móti verðandi Íslandsmeisturum Keflavíkur. Snæfellsliðið er mun líklegra eins og sést vel á því að allir spámenn Fréttablaðsins spá Hólmurum sigri og fjögur af átta búast við „sópi“.

Bikarmeistarar Hauka mæta Keflavík og er fyrsti leikurinn í Schenkerhöllinni á Ásvöllum klukkan 16.00 í dag. Haukar unnu þrjá af fjórum deildarleikjum liðanna og slógu Keflavík einnig út úr undanúrslitum bikarkeppninnar á dögunum. Keflavík vann fyrsta leik liðanna í vetur en Haukakonur hafa unnið síðustu fjóra, þar af tvo þeirra með meira en 25 stiga mun. Haukaliðið vann síðasta leikinn hins vegar á dramatískan hátt og með aðeins einu stigi en sá leikur ætti að lofa góðu fyrir þetta einvígi. Spámenn Fréttablaðsins búast líka flestir við oddaleik í þessu einvígi eða sex af átta.

„Óvænt“ úrslit síðustu ár

Undanfarin þrjú ár hafa hins vegar orðið „óvænt“ úrslit í undanúrslitum í úrslitakeppni kvenna. Njarðvík sló út deildarmeistara Hamars 2001, Haukar slógu út deildarmeistara Keflavíkur 2012 og KR sló út Snæfell í fyrra í uppgjöri liðanna í öðru og þriðja sæti. Í þremur af fjórum leikjum í undanúrslitunum síðustu tvö árin hefur líka fyrsti leikurinn unnist á útivelli og það er því löngu sannað að það getur allt gerst í úrslitakeppninni.

Öll fjögur liðin í undanúrslitunum hafa unnið titil í vetur. Snæfell er deildarmeistari, Haukar tóku Powerade-bikarinn, Valur vann Lengjubikarinn og Keflavíkurkonur urðu meistarar meistaranna. Aðeins eitt þeirra getur aftur á móti unnið tvöfalt í vetur og í dag hefst nýtt mót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×