Menning

Allt gerist á einu torgi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Frumsýning og lokasýning verður á Óperutorginu í Salnum sama daginn.
Frumsýning og lokasýning verður á Óperutorginu í Salnum sama daginn.
„Þessi sýning er samsett úr þremur ólíkum óperum frá mismunandi tímabilum,“ segir Ásrún Davíðsdóttir í Söngskólanum í Reykjavík um sýningu Nemendaóperunnar í Salnum á morgun.

Óperurnar þrjár eru Hans og Gréta eftir Humperdinck, Kátu konurnar í Windsor eftir Nicolai og Don Giovanni eftir Mozart.

Sibylle Köll leikstýrir uppfærslunni og sér um sviðshreyfingar og dansa. „Hún gerir þetta ansi skemmtilega hún Sibylle. Hún kallar þetta Óperutorgið því þrátt fyrir ólíka söguframvindu verkanna þriggja tengir hún þau saman með því að láta þau gerast á einu torgi,“ lýsir Ásrún. „Þar hittist fólk, spjallar og syngur og þar er vettvangur atburðanna.“

Tónlistarstjórn er í höndum Janet Haney sem einnig leikur með á píanó. Hún er óperusérfræðingur að sögn Ásrúnar.

„Janet Haney þekkir vel til verkanna og veit hvaða hefðir eru í túlkun þeirra því það eru ekki bara nótunum á blaðinu sem þarf að fylgja heldur kemur fleira til.“

Söngskólinn í Reykjavík heldur upp á 40 ára afmæli í vetur og Óperutorgið er liður í því.

Tvær sýningar eru á morgun, sunnudag, klukkan 15 og 18, þannig að frumsýning og lokasýning eru sama daginn.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.