Bíó og sjónvarp

Heimsfrumsýning á Íslandi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Persar og Grikkir berjast í 300: Rise of an Empire.
Persar og Grikkir berjast í 300: Rise of an Empire.
Kvikmyndin 300: Rise of an Empire, verður heimsfrumsýnd á Íslandi á morgun. Hún er sjálfstætt framhald myndarinnar 300 sem Zack Snyder gerði árið 2006.

Zack skrifar handritið og framleiðir myndina en nú er það Ísraelinn Noam Murro sem leikstýrir. Myndin er byggð á teiknimyndasögunni Xerxes eftir Frank Miller og ku ekki gefa 300 neitt eftir.

300: Rise of an Empire gerist þegar Leonídas konungur er fallinn og persneski herinn, sem leiddur er af hálfguðinum Xerxes, nálgast Aþenu. Xerxes hefur heitið því að leggja bæði Spörtu og Aþenu undir sig og þurrka út gríska samfélagið í eitt skipti fyrir öll en her hans er gríðarlega öflugur.

Hinn hugrakki Þemistókles leiðir varnarbaráttu Grikkja en verkefnið virðist nær ómögulegt.

Í aðalhlutverkum eru Sullivan Stapleton, Rodrigo Santoro, Eva Green, Lena Headey, Jack O'Connell, David Wenham og Andrew Tiernan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×