Bíó og sjónvarp

Lego-kubbar lifna við í glænýrri kvikmynd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Það er nóg af spennu í Lego-myndinni.
Það er nóg af spennu í Lego-myndinni.
Lego The Movie hefur farið sigurför um Bandaríkin en hún verður frumsýnd á Íslandi á föstudag.

 

Aðalpersóna myndarinnar er verkakubbakarlinn Hemmi sem er alltaf í góðu skapi. Hann hefur enga reynslu af því að byggja Lego án leiðbeininga og vill alltaf fara eftir settum reglum. Byltingarsinnar vilja hins vegar fá að kubba án leiðbeininga og þeir eru sannfærðir um að Hemmi sé hinn útvaldi og geti kubbað það sem honum sýnist. Hann er því fenginn til að leiða baráttuna gegn hinum illa harðstjóra sem hefur bannað að kubbað sé án viðeigandi leiðbeiningabæklinga.

Í fyrstu líst Hemma ekkert á hið nýja hlutverk sitt enda hefur hann ekki hugmynd um hvernig á að kubba án leiðbeininga. Sem betur fer nýtur hann aðstoðar góðra stuðningskubba eins og ofurkubbanna Batmans, Grænu luktarinnar og Súpermanns því annars væri útlitið dökkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×