Bíó og sjónvarp

Vilja þjóna kvikmyndaunnendum á landsbyggðinni betur

Ása Baldursdóttir
Ása Baldursdóttir mynd/Nanna Dís
„Þetta er stórkostleg nýjung í okkar starfi. Það hefur lengi verið okkar draumur að bjóða upp á kvikmyndir á öðrum vettvangi, sér í lagi þar sem ekki geta allir sótt Bíó Paradís svo auðveldlega,“ segir Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri kvikmyndahússins, sem opnar sérstaka Bíó Paradís VOD-rás á Leigunni hjá Vodafone á þriðjudaginn næstkomandi.

„Við bjóðum upp á evrópskar verðlaunamyndir, stórkostlegar heimildarmyndir, og áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum og er það okkar einlæga von að VOD-rásin eigi eftir að auðga aðgengið að rjómanum, á auðveldan og handhægan máta. Það ættu allir að fylgjast vel með VOD Bíó Paradís á Leigu Vodafone,“ útskýrir Ása.

„Við viljum auka framboð gæðakvikmynda á íslenskum leigumarkaði til mikilla muna. Þetta er gert til þess að þjóna betur kvikmyndaunnendum á landsbyggðinni og þeim sem heima sitja,” segir Ása jafnframt.

Fimm myndir verða í boði frá 28. janúar, en þær eru Berberian Sound Studio, Ernest og Celestína, Paradís: Ást, Pussy Riot: Pönkarabæn, Äta sova dö: Borða sofa deyja, en fleiri myndir munu bætast við á næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×