Bíó og sjónvarp

Lupita kom, sá og sigraði

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Árið byrjar vel hjá Lupitu.
Árið byrjar vel hjá Lupitu. Vísir/Getty
Verðlaunahátíðin Critics‘ Choice var haldin í Santa Monica í Kaliforníu í gær og dró þar helst til tíðinda að Lupita Nyong‘o hlaut verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í 12 Years a Slave. Höfðu margir typpað á að Jennifer Lawrence myndi hampa hnossinu fyrir hlutverk sitt í American Hustle.

Þetta er fyrsta hlutverk Lupitu í Hollywood og komu verðlaunin henni mjög mikið á óvart.

„Ég er pínulítið hrædd. Það er svo mikill heiður að vera hér og mig langar að þakka fyrir þennan ótrúlega heiður. Þetta hefur verið frábært ár með framúrskarandi frammistöðum í flokknum mínum og mér finnst það heiður að vera tilnefnd með konum á borð við June Squibb, Juliu Roberts, Jennifer Lawrence, Scarlett Johansson,“ sagði Lupita við blaðamenn eftir verðlaunahátíðina.

Hér er listi yfir helstu sigurvegara á hátíðinni:

Besta mynd: 12 Years a Slave

Besti leikari: Matthew McConaughey, Dallas Buyers Club

Besta leikkona: Cate Blanchett, Blue Jasmine

Besti leikari í aukahlutverki: Jared Leto, Dallas Buyers Club

Besta leikkona í aukahlutverki: Lupita Nyong‘o, 12 Years a Slave

Besta leikaralið: American Hustle

Besti leikstjóri: Alfonso Cuaron, Gravity

Besta frumsamda handrit: Spike Jonze, Her

Bestu tæknibrellur: Gravity

Besta teiknimynd: Frozen

Besta hasarmynd: Lone Survivor

Besta gamanmynd: American Hustle

Besti leikari í gamanmynd: Leonardo DiCaprio, The Wolf of Wall Street

Besta leikkona í gamanmynd: Amy Adams, American Hustle

Besta erlenda mynd: Blue is the Warmest Color

Besta lag: Let It Go, Frozen

Heitasta stjarna Hollywood: Benedict Cumberbatch






Fleiri fréttir

Sjá meira


×