Fótbolti

Meistararnir töpuðu á heimavelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Mandzukic var svekktur með tapið í dag.
Mario Mandzukic var svekktur með tapið í dag. Vísir/Getty
Spánarmeistarar Atletico Madrid mátti sætta sig við 1-0 tap gegn Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-0.

Argentínumaðurinn Luciano Vietto skoraði eina mark leiksins á 84. mínútu og tryggði Villarreal þar með óvæntan sigur á Vicente Calderon vellinum.

Atletico er í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig og er sjö stigum á eftir grannliðinu Real Madrid, sem er í efsta sæti. Barcelona er svo í öðru sæti með 35 stig.

Villarreal komst upp í sjötta sætið með sigrinum en liðið er með 27 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×